Lasertagmót NFFG

Fös, 27. jan 2012
18:00 - 21:00
FG
3000
Föstudaginn 27. janúar fer fram hið geysiæsihrikalegaskemmtilega Lasertagmót NFFG í skólanum. Keppnin hefst kl. 18 og keppt verður fram eftir kvöldi.

6 manns eru saman í liði en sigurliðið ásamt öðru sæti keppa síðan í úrslitum framhaldsskólanna en þau eru vanalega haldin á risastórum stöðum t.d. Vodafonehöllin og Broadway.

Völlurinn verður á öllum þremur hæðum skólans ásamt því að við munum setja upp hindranir, veggi ásamt ljósum og dúndrandi hljóðkerfi.

Þátttökugjald er 3000 krónur og innifalið er leiga á búnaði ásamt glóðvolgum pizzusneiðum og ísköldu gosi frá Vífilfell.


Verðlaunaflokkarnir eru:
Efstu tvö liðin
Best klædda liðið
Besti leikmaður
Lélegasti leikmaður