Lasertagmótið á föstudag

Stefán Snær Stefánsson | 23. janúar 2012 21:55
Lasertagmót NFFG

Lasertagmót NFFGNewsgrounds

Föstudaginn 27. janúar fer fram hið geysiæsihrikalegaskemmtilega Lasertagmót NFFG í skólanum. Keppnin hefst kl. 18 og keppt verður fram eftir kvöldi. 6 manns eru saman í liði en sigurliðið ásamt öðru sæti keppa síðan í úrslitum framhaldsskólanna en þau eru vanalega haldin á risastórum stöðum t.d. Vodafonehöllin og Broadway. Völlurinn verður á öllum þremur hæðum skólans ásamt því að við munum setja upp hindranir, veggi ásamt ljósum og dúndrandi hljóðkerfi. Þátttökugjald er 3000 krónur og innifalið er leiga á búnaði ásamt glóðvolgum pizzusneiðum og ísköldu gosi frá Vífilfell. Skráningarblöð hanga í anddyrinu Verðlaunaflokkarnir eru: Efstu tvö liðin Best klædda liðið Besti leikmaður Lélegasti leikmaður