Gettu betur sigur á MÍ: Komnir í sjónvarpið

Stefán Snær Stefánsson | 23. janúar 2012 21:55

RÚV

Sæþór, Hans og Tómas sigruðu í kvöld lið Menntaskólans á Ísafirði í annarri umferð Gettu betur 23-8. Þar með hafa þeir tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum sem fara fram í beinni útsendingu á RÚV. Dregið verður næstkomandi mánudag. Ljóst er að FG skartar einu af betri liðum keppninnar í ár og hafa stórbætt sig á öllum sviðum. Í fyrra komust þeir í undanúrslit, og við trúum því statt og stöðugt að þeir bæti árangur sinn. Og hver veit, kannski er kominn tími á að Hljóðneminn berist til FG?